Google eða ljóska??

09.02.2007 15:32:52 / Ljoskan

Föstudagur

Var búin að blogga helling og auðvitað þurfti það að detta allt út!! Svona er það þegar maður hlýðir ekki og gerir þetta í Wordinu.... 

Vaknaði kl. 8 í morgun og fór með Óliver á leikskólann. Píndi mig til að haldast vakandi til að snúa aftur þessum blessaða sólahring við eftir þessa daga sem ég hef verið heima með Óliver.  Ætlaði að fara í BodyShape tíma í hádeginu en það var nú næstum farið fyrir bí þegar ég sofnaði næstum því í sófanum. Anna Mæ kom þá með sína úber súper krafta, reif mig upp og henti mér í tímann ásamt Elínu. Við pæjurnar tókum þokkalega vel á því í tímanum og ég er ekki frá því að við verðum með einhverja strengi á morgun. Unnur Pálma var að kenna, hún er alltaf svo hress og skemmtileg J   

Fer á morgunvakt í fyrramálið, bara eina staka vakt þrátt fyrir að hafa verið að vinna síðustu helgi. Frekar asnalegt.  

P-nut er að halda upp á 34 ára afmælið sitt annað kvöld. Ég hef ekki hugmynd hvað ég á að gefa þeim, ég á nefnilega eftir að gefa Hrafnhildi 25 ára afmælisgjöf. Allar hugmyndir vel þeganar!!

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 04:32:56 / Ljoskan

Samsæri aldarinnar??

 

Á þessari slóð er alveg ótrúlegt bréf sem kona ein hefur víst skrifað til stjórnvalda (eða svo stendur þarna). Ég get nú lítið lýst því sem segir, fólk verður að lesa sjálft og mynda sér skoðun á þessu.

Ég gæti sko alveg trúað því að það sé sannleikskorn í þessu, enda hef ég svo gaman að góðum samsæriskenningum..... kíkið:

http://mal214.googlepages.com/


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 00:22:48 / Ljoskan

...

Á www.mbl.is er verið að lýsa eftir 16 ára stelpu. Ekkert hefur spurst til hennar síðan þriðjudaginn 30. janúar. Ég var að velta fyrir mér, það var fyrst í dag sem farið að auglýsa eftir þessari stelpu og hún hefur verið týnd í viku! Ég er ekki að skilja afhverju það hefur ekki verið lýst eftir henni fyrr??!! Ég væri að fríka út ef barnið mitt væri týnt og myndi auglýsa eftir því sem fyrst. Vona að stelpan sé óhult.                 Hér er slóðin á fréttina: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1251959

Átakið gengur vel þrátt fyrir dálítið sukk í bústaðnum um helgina 8| og litli fuglar hafa sagt við mig að ég sé að grennast.... Reyndar eru buxurnar aðeins lausari á mér :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 17:47:42 / Ljoskan

Góð byrjun

Í dag er 6. dagur átaksins og ég hef strax misst rúmt kíló:!:

Gaman þegar þetta byrjar svona vel, þá er maður alveg æstur í að halda áfram. En eins og ég hef sagt, þá gera þessar Metasys töflur alveg gæfumuninn. Þær jafna út blóðsykurinn og þörfin fyrir sykur og aðra óhollustu er farin. Einnig þarf ég að borða oftar yfir daginn og það er merki um að brennslan sé farin í gang. En það er mismunandi eftir fólki hversu fljót hún er að fara í gang.:D Kíkið á www.metasys.is og lærið meira um þessar töflur. (nei ég er ekki á samningi hjá þeim...)

Núna verð ég bara að passa mig að þurfa ekki að éta ofan í mig þessar dásamlegu yfirlýsingar mínar, verð að passa að storka ekki örlögunum :$

Markmiðið er að vinna átakskeppnina og hirða 35.000 kall af sjúkkunum! Hehehehehehe :haha::haha::haha:

Við Guðni horfðum á mynd í gærkvöldi sem heitir "Stick it" og ég mæli með henni, hún er mjög skemmtileg. Hún fjallar um unglingsstelpu sem er alltaf að koma sér í vandræði. Eftir enn eina handtökuna fer hún fyrir rétt og dómarinn skipar henni að fara í fimleikaþjálfun í stað fangelsis.... Þessi mynd er nýkomin út á dvd held ég, ef ekki þá er stutt í það.


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 22:27:29 / Ljoskan

Blah blah

Hvernig er þetta eiginlega, þegar ég blogga reglulega þá fæ ég fáar athugasemdir um hverja færslu, en ef ég blogga ekki þá er allt brjálað??

Ég er núna í vinnunni og það er alveg vooooðalega rólegt á deildinni. Ég hef þá alltof mikinn tíma í að hlakka til sumarbústaðarferðarinn og svo Spánarferðarinnar sem við getum ekki hætt að tala um!!! Það er alltof langt í þessa ferð til að vera hugsa um hana núna!8|

Reyni að fókusa bara á bústaðarferðina okkar, 2.-4. febrúar..... það verður bara hreinasta snilld!! Það verður aðeins minni sukkferð en venjulega, meira af grænu og hollu en samt verður nú eflaust líka smá nammi og ekki má gleyma að taka nokkra áfenga með :haha:

Átakið gengur vonum framar og ég þakka nýja vini mínum, Metasys kærlega fyrir! Nei án gríns, þá er þetta eitthvað sem virkilega virkar og ég hvet ykkur til að prófa það.:haha::haha::haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 14:36:57 / Ljoskan

Þula

Byrjað er að selja geisladisk til styrktar fjölskyldu Svandísar Þulu heitinnar. Aðallagið á diskinum heitir "Þula" og er eftir Leone Tinganelli, nágranna þeirra.

Ég var að hlusta á þetta lag og það er alveg gullfallegt. Guðrún Árný samdi íslenska texta lagsins og syngur með honum líka.

Hérna er hægt að heyra lagið (fyrst kemur viðtal við Leone og eftir það er lagið spilað): http://www.bylgjan.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=17434

Diskurinn er seldur á www.frostid.is og í Hagkaup. Bróðir hennar er ennþá á spítala og ég hvet alla til að styrkja þessa fjölskyldu.


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 19:55:12 / Ljoskan

GLEÐILEG JÓL!!

Gleðileg jól!!

Jólin byrjuðu nú ekki með stæl hjá okkur! Óliver er búin að vera með flensuna núna í rúma viku og við Guðni erum tekin við. Við fórum auðvitað til foreldra okkar í gær, en vel byrgð af verkjastillandi og hitalækkandi til að komast í gegnum kvöldið! :(

Þetta er alveg ægileg pest, er búin að vera með þetta í einhverja daga núna og þetta virðist ekkert ætla að lagast eitthvað að viti. Guðni er með þvílíkan hita, í morgun mældist hjá honum 39,5°C. Ég hef líka verið með hitavellu, en ekkert í líkingu við hitann hjá Guðna.:^)

Jólasveinninn brilleraði algjörlega þegar hann gaf mér í skóinn á aðfangadag. Ég fékk 1 GB USB lykil sem kemur sér mjööög vel og líka dagatal slökkviliðsins! Það er náttúrulega algjör nauðsyn til að geta planað eitthvað fram í tímann.. *fliss*

Við fengum helling af gjöfum, en það sem stóð upp úr hjá mér var kápa sem ég fékk frá mömmu og pabba, og Dyrberg/Kern skartgripir frá “Óliver”. Hann hefur svo sannarlega góðan smekk hann sonur minn. Mér finnst skartið frá D/K svo flott. Algjör snilld með kápuna. Ég er búin að leita út um allan bæ af kápu, en hef ekki fundið neina sem ég fíla. Svo fæ ég þessa í jólagjöf frá mömmu og pabba. Þau keyptu hana úti og hún er alveg eins og ég vildi hafa hana og smellpassar í þokkabót! :D

Þið sem senduð mér jólakort, ég biðst afsökunnar á því að hafa ekki sent ykkur líka. Ég ætlaði að senda kort til allra með mynd. Allar myndirnar okkar eru í heimilistölvunni og þegar ég ætlaði að senda hana með e-mail til Hans Petersen, þá fraus Outlook alltaf! Sama hversu oft við reyndum. Þá ákvað ég að senda bara kort án myndar, en ég komst ekki í það vegna þess að ég veiktist og hafði þá enga orku í að standa í þessu. Sem betur fer var ég búin að kaupa allar jólagjafirnar.8|




» 2 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 01:27:25 / Ljoskan

Bakstur

Í dag var söru-bakstur hjá okkur stelpunum. Við byrjuðum fyrir hádegi og vorum að alveg til kl. hálf átta. Við vorum voðalega klárar við þennan bakstur, vorum reyndar aðeins of lengi að þessu en skemmtum okkur svooo vel. Það var svo kósí stemning hjá okkur, malt og appelsín, jólakaffi og jólatónlist. Takk fyrir æðislegan dag stelpur!! J

Það var samt einn galli við þettta, kökurnar sem fóru síðast í ofninn voru ónýtar L Við Thelma gleymdum síðustu plötunni í ofninum svo að þær kökur voru dekkri en hinar. Við héldum nú að þær væru í lagi (líta ekki út fyrir að vera brenndar), en þegar ég smakkaði þær í kvöld, þá var brunabragð af þeim ojojojoj..... Frekar svekkjandi eftir að maður er búin að dúlla við að setja þær saman L

Við tókum okkur smá pásu í hádeginu og fórum að sækja einkunnirnar okkar. Ég var alveg hoppandi glöð þegar ég sá að ég náði íslenskunni og fékk 6 í einkunn. Meðaleinkunin var 8 og ég er auðvitað mjög ánægð með það J

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 09:26:12 / Ljoskan

Santaclause is coming to town!

Loksins er skólinn búinn! Ég fór í íslenskuprófið í fyrradag og er ansi hrædd um að hafa fallið með stæl!! Ég skil ekki alveg hvað gengur að kennurum að hafa svona hrikalega þungt próf. Ég get sagt með góðri samvisku að ég lærði mjög vel fyrir þetta próf, en þegar ég kom, fannst mér ég vera að taka próf úr öðrum áfanga! Svei mér þá....

Ég er langt frá því að meika að taka þennan áfanga aftur. Þetta er svo tilgangslaus áfangi, þessi íslenska er komin út í öfgar og svo á ég eftir að taka 503. 8|

Jólasveinninn hefur komið þrisvar til okkar til að gefa Óliver í skóinn. Fyrst fékk hann lítinn bangsa, í gærmorgun fékk hann lögreglujeppa og svo fékk hann Playmo kall núna. Hann skreið upp í hjá okkur í fyrrinótt og í gærmorgun sagði ég honum að kíkja út í glugga inni hjá sér og athuga hvað hann hefði fengið í skóinn. Hann hélt nú ekki og sagði bara “enginn jólasveinn!!” Hann var ekki að kaupa þetta þangað til ég tók hann spriklandi inni í herbergið og sýndi honum bílinn standandi upp úr moonbootsinu hans! Hann er ekki alveg að fatta þetta..........8|

Guðna finnst jólasveinninn vera voðalega nískur og vill að hann gefi honum DVD myndir og risa leikföng. Ég reyndi að útskýra fyrir honum að jólasveinninn gæfi ekki svona dýrt í skóinn, en hann sagðist bara ætla samt að biðja sveinka um að uppfylla þessar óskir sínar *dæs*:$

Fór í jólahárgreiðsluna í gær til Hrafnhildar minnar. Er komin með voða flottar strípur. Síðast fékk ég strípulit í hárið sem var með pínu bleikum blæ. Ég hef aldrei verið jafn ánægð með strípulit áður og ætlaði sko að fá hann aftur. Nei, nei, er Matrix fyrirtækið ekki búin að skipta þessum gömlu litum út fyrir nýja línu, og enginn þessara nýju lita er líkur þessum!! Arg! Ég var ekki sátt við þetta. Og liturinn var ákkúrat búinn hjá Hrafnhildi. Þetta er alveg týpískt, loksins þegar maður finnur eitthvað sem mann líkar sérstaklega, þá er markaðurinn hættur með þetta! Hún blandaði öðrum tveimur litum saman til að reyna fá svipaða útkomu. Það virkaði nú ekki alveg, en hann kom samt vel út. Hún ætlar samt að hringja í heildsöluna og athuga hvort þeir eigi einhvern afgang af þessum lit J

Fyrir ykkur Beverly Hills 90210 aðdáendur, þá gaf Paramount Pictures út fyrstu seríu af þáttunum 21. nóvember sl. eftir að óteljandi undirskriftarlistar hafa gengið um heiminn síðustu ár, með því markmiði að sannfæra þá um að gefa þessa vinsælu þætti út á dvd. En þeir keyptu höfundaréttinn af Spelling fyrir einhverjum árum. Fyrst þessi sería er komin, þá hljóta hinar að vera á næsta leiti. Ekki má ég gleyma því að fyrsta serían af Melrose Place er líka komin út. Hrafnhildur sá 90210 seríuna í Hagkaup um daginn, ef einhvern langar að setja hana á óskalistann sinn! Hún lítur víst svona út:

 

Beverly Hills, 90210 - The Complete First Season


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 17:23:23 / Ljoskan

Hún á afmæli í dag :o)

 

 

 

 

Yndislega vinkona mín hún Stella á 25 ára afmæli í dag!

Til hamingju með afmælið elsku sæta mín J

Að sjálfsögðu læt ég Toby fylgja með fyrir þig! Þetta er bara fyrir Stellu, alveg satt!

 

 

 



 



 






» 9 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 00:25:12 / Ljoskan

ROCKSTAR!!

Tónleikarnir já... úff ég bara veit ekki hvað ég á að segja. Þetta var alveg ólýsalega æðislega geðveikt! Ég bara get ómögulega orðað það hversu skemmtilegt þetta var. Hvert einasta skynfæri líkamans var vakandi á þessum atburð og ég held svei mér þá að ég hafi verið með gæsahúð allan tímann.

Need I say more??????

Storm var ÆÐI alltaf hrikalega flott 8)


» 8 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 13:54:25 / Ljoskan

Frekar furðulegt

Ég var að fá frekar skondið e-mail núna áðan! Í subject stóð “Sv: Apply for job.” Í því stóð:

Angående utannonserade tjänster som sjuksköterska vid Dialysenheten, Capio Lundby Sjukhus.

Tack för din ansökan till rubricerade tjänster.

Vi har nu avslutat rekryteringsprocessen och vill därmed meddela dig att tjänsterna nu har tillsätts med några av dina medsökande.

Vi vill tacka för ditt visade intresse för rubricerad tjänst.

Göteborg som ovan

Med vänliga hälsningar

Kristina Magnusson                                       Personaladministratör

Sem sagt að því miður eru engar lausar stöður hjúkrunarfræðings á blóðskilunardeild Capio Lundby Sjúkrahússins. Og undir skrifar þessi Kristina Magnusson starfsmannastjóri.

Fyrir neðan þetta svar, er bréf frá konu að nafni Jóhanna María Þórhallsdóttur (sömu upphafsstafir og mínir) þar sem hún er að segja frá því að hún sé að flytja til Gautaborgar haustið 2006 og óski eftir vinnu þar. Það bréf er dagsett 2. júlí 2006!!

Þetta er reply af bréfi sem sent hefur verið af mínu netfangi (samkvæmt tæknimáli þessa bréfs).... frekar furðulegt þar sem ég hef haft þetta netfang í 2-3 ár.

Ég hringdi í þjónustusíma Símans til að forvitnast um þetta og tæknikallinn hafði enga hugmynd hvernig þetta hefði gerst. Að þetta væri einhver bilun í kerfinu? En þessi manneskja er ekki einu sinni á skrá hjá þeim með neina þjónustu.

Kannast einhver við þessa Jóhönnu?


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 17:38:24 / Ljoskan

Netlaus

Ég er búin að vera netlaus undanfarna daga. Það er alveg hræðilegt, maður er svo háður tölvunni og netinu. Maður fer í panic yfir því að hafa fengið eitthvað mikilvægt e-mail og geta ekki kíkt á það! Og sérstaklega að missa af bloggrúntinum sem maður fer daglega, Gunna, Thelma, Lóa og hjúkkusíðan...

Svo förum við Stella á Rockstar tónleikana á föstudaginn, ég hlakka geðveikt til! Thelma er búin að skipa mér að fara með myndavél með mér, taka mynd af Toby og stækka hana upp í meter x meter! Og auðvitað myndi ég fá mér eintak líka! ;) Loksins fer maður að gera eitthvað skemmtilegt og öðruvísi, önnin er búin að vera svo venjuleg eitthvað og það eina sem hefur staðið upp úr hingað til er bústaðarferðin í byrjun september! Það er náttúrulega allt of langt síðan.


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan